Lena

21.05.2007 20:33:46 / brussa

Tilkynning.

Þessi síða er ekki lengur í boði, er komin með nýja síðu www.lenilius.bloggar.is

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:41:22 / brussa

Loksins er sumarfríið byrjað.

Já, það er ekkert neitt rosa mikið af frétta af mér akkurat núna. Er búin að vera lasin núna í 3 daga, og það er búið að vera ömurlegt að hanga heima. En það er nóg framundan, er að fara til Danmerkur eftir næstum því mánuð. Núna tekur vinnan við í næstu viku, verð að vinna all daga bara gaman. En ég er að spá í því að byrja með nýja heimasíðu og fara á bloggar.is í staðinn fyrir þessa. Hvað finnst ykkur?

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 19:53:21 / brussa

Heyhó....

Gangi ykkur öllum vel í prófum þið sem eruð að fara í próf.

En ég ætla að ekki að blogga neitt , meðan ég er í prófum.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 14:02:06 / brussa

Daginn....

Það er soldið síðan að ég bloggaði seinast, en það er alveg nóg búið að gerast hjá mér. Held að það sé bara best að rifja upp seinustu viku. Seinasta laugardag eða tveimur dögum eftir sumardaginn fyrsta. Þá var mér boðið í matarboð hjá Örnu, það var alveg æðislega góður matur. Það voru nautakjöt, sem er alveg besti matur sem ég hef smakkað. En vill bara þakka fyrir mig var alveg æðislegt. Síðan fór ég á kaffihús um kvöldið, það var mjög hressandi. Eftir það var farið aðeins heim. Eftir það hitti ég Stellu og Pálu og fleira fólk niður í keiluhöllinni. Vorum þar í svona hálftíma, ég keyrði stelpunum niður í bæ. Síðan var planið að hittast í bænum. Ég var náttúrulega driver, sem er bara gaman. Eftir það fór ég að sækja Fanný og við fórum fyrst á Celtic. En það var eiginlega ekkert stuð þar þannig við fórum frekar á Hressó. Þa' er bara svo týpist þegar maður er á bíl niður í bæ. Þá bjóða alltaf einhverjir manni upp á bjór. Hvað er málið með það, ég er ekki að segja að það sé eitthvað slæmt. Heldur það er bara alltaf þegar maður driver.  Ég skemmti mér mjög vel, var samt ekki alveg sátt með tónlistina. Þangað til að Dj kom með Sódóma lagið og síðan var bara rokk lög í endann. Bara stuð, það var punkturinn á kvöldinu. Eftir það var bara skutlað fólkinu heim.  Á sunnudaginn var bara skotist í ræktina og bara eitthvað púlað þar. Síðan ákvað ég að vera svo dugleg að þrífa bílinn, ég er svo dugleg. :) Já þetta var svona gert um helgina , mjög góð helgi. Í gær fór ég í billard með Stellu , Pálu, Gunna og Siggu. Það var mjög gaman. Tjá.... Allavega ætla að segja þetta gott.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 14:28:01 / brussa

Sumardagurinn fyrsti á morgun frí....

Það er svona frekar langt síðan ég bloggaði seinast. Hef líka afsökun fyrir því , það er búið að vera brjálað að gera í skólanum. Endalaust af verkefnaskilum og ritgerðum. Sem betur fer var það seinasti dagurinn í dag. Þannig núna er ekki eins mikið að gera í skólanum, fyrir utan að prófin séu að fara byrja. En það er bara allt gott af frétta af mér. Get ekki beðið eftir því að vera búin í skólanum og prófunum. Fer líka í bara 3 próf sem er bara mjög gott mál. Síðan er ég búin í prófum 14 maí. Ætlaði bara að hafa þetta stutt og láta vita að ég sé á lífi.... ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 21:08:21 / brussa

Kvöldið

Í gær var seinasti dagurinn í vinnunni fyrir páskafríið sem er bara mjög fínt. Eftir vinnuna fórum ég, Didda, Fanný, Birna og Thelma út að borða á Olvier. Það var rosa gaman ég pantaði mér reyndar nautasteik, sem var hrátt. Ekki alveg það sem ég hafði í huga. Þetta var svona mjög skrautleg máltíð. En ég ætla allavega ekki að fara þarna aftur og fá mér að borða. Síðan eftir það fórum við stelpurnar bara einn laugara og ég fór síðan bara heim. Ég vaknaði mjög hress í morgun fór í fermingu til Þórdísar frænku, það var bara mjög skemmtilegt. Fór í kirkjuna og orgelspilarinn var að sæfa alla þarna. Ég var að missa mig að taka myndir... heheh.... Eftir það brunaði ég heim að sækja Palla og fórum við síðan í veisluna. Það var alveg pakkað af fólki, mjög góð mæting. Síðan vorum við frænkurnar bara að spila, ég tapaði alltaf. :haha: Eftir veisluna fór ég bara heim og var að halda áfram með ritgerðina mína og er ég núna hálfnuð. Allt að koma ég ætla síðan að klára hana á morgun. Um helgina ætla ég stökkva í námsbækurnar og fara læra .... En hafið það gott um páskanna, ekki borða yfir ykkur.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 20:26:52 / brussa

Föstudagur

Ég fór á árshátíðina MK í gær og það var mjög gaman, ákvað að vera á bíl. Dagurinn byrjaði þannig að ég fór.  í skólann í 2 tíma síðan var ég bara komin í páskafrí. Eða það var bara kennt til hádegis í skólanum hjá mér. Síðan eftir skólann fór ég bara heim og tók til í hererginu mínu. Eftir það fór ég að vinna til svona hálf átta. Síðan fór ég beint heim og fór að gera mig ready fyrir árshátíðina. Eftir það fór ég til Hörpu og þegar ég var búin að ná í hana, fórum við til Freyju. Hún var með svona hitting heima hjá sér, það var mjög fínt. Klukkan svona hálf 11 fórum við í hafnarfjörðin og sóttum vinkona Hörpu. Síðan rétt náðum við að komast inn á ballið það var sko að loka . En það var mjög gaman á ballinu og ég nenni ekki að vera lýsa öllu ballinu. En allavega Papparnir voru að spila geggjað gaman. Ballið var til hálf 3, og eftir það fórum ég Rósa og Harpa. Að fá okkur að borða fórum í Esso í Ártúninu. Viti menn hitti maður ekki bara allan hópinn aftur, það var mjög hressandi. Síðan keyrði ég bara Hörpu og Rósu heim til sín. Fór síðan heim og sofnaði strax. Vaknaði í morgun alveg klukkan 12 . Síðan komu Tommi og Einsi í heimsókn til okkar það var rosa gaman. Þeir ætla að koma aftur á morgun get ekki beðið. Það er nóg að gera um páskanna. Mikill lærdómur..... En allavega 

 

GLEÐILEGA PÁSKA

:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 14:43:15 / brussa

Árshátíð í kvöld

Það er árshátíð  í kvöld mjög gaman, ætla eimmit að skreppa með Stellu í kringluna. Þarf að fara kaupa mér skó. Í gær þá kíkti ég í heimsókn til Pálu og við horfðum á X-factor. Ég sótti síðan Stellu áður en ég fór til Pálu. Ég var mjög sátt með úrslitin að Hara komst áfram, en síðan datt Gís datt út, var svona frekar að vonast að Guðbjörg mundi detta út. Ekki eins og ég hafi eitthvað á móti henni, en mér finnst bara hinir keppendurnir hafa meira af hæfileikum en hún. Hún á meira heima í óperunni, er með svo flotta rödd í óperu. Eftir x-factorinn fórum við í Pool. Ég get sagt ykkur það ég held að ég eigi ekkert að vera reyna neitt í Pool. Er ekki mjög góð, en það er bara gaman samt. Síðan var ákveðið að fara bara einn laugara, og síðan keyrði ég bara Pálu til Gunna, og síðan Stellu bara heim til sín. Síðan ætlaði ég að fara heim að glápa á sjónvarpið. Gærdagurinn var bara mjög fínn. Systir mín kemur heim eftir nokkra daga vúhúhú. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 21:32:56 / brussa

Ný vinna

Í dag byrjaði ég í nýju vinnunni minni, það var soldið spes. Mætti í vinnuna þekkti bara Stellu og Pálu. En það er mjög skemmtilegt fólk að vinna þarna. Er í svona starfsþjálfun núna, algjörleg í uppáhaldi hjá öllum :lol:. Pála var að þjálfa mig það var mjög fínt.  En ég verð bara fegin þegar ég er búin að ná þessu öllu. Var bara að koma heima núna, er að horfa á Shark í sjónvarpinu og eitthvað að chilla. Get ekki beðið eftir páskafríinu það eru bara 10 dagar. Síðan er Anna og co, að koma eftir nokkrar viku. Hlakka svo til að sjá þau, ætla að knúsa strákana þeir eru orðnir svo stórir. Ætla að segja þetta gott....


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 15:10:26 / brussa

Allt í gangi

Já, það er alveg nóg búið að gerast í þessum mánuði. Bara búin að vera fínn mánuður, ég var að fá nýja vinnu í Ikea. Verð að vinna þar um helgar , vantaði svona helgarvinnu. Er mjög ánægð með það, skrítið samt að fara byrja á nýjum vinnustað. En það verður bara gaman alltaf gaman af því að kynnast nýju fólki. Síðan verð ég líka að vinna með Stellu og Pála, sem gerir vinnuna bara skemmtilegri. Seinustu helgi fór ég með vinnufélögunum í bústaðarferð, ég skemmti mér mjög vel. Vill ég bara þakka öllum fyrir að gera þessa helgi svona skemmtilega. En það er alveg nóg að gera hjá mér í skólanum og öllu öðru. Er að fara í stærðfræðipróf á morgun. Ég er síðan að fara í 2 árshátíðir í þessum mánuði, það verður bara stuð. Sem sagt árshátíðin í MK og síða Ikea. Er búin að kaupa mér kjóla og læti. Síðan er páskafríið mitt að byrja eftir 2 vikur, en byrjar lærdómurinn á fullu.

Í þessari viku í skólanum er búið að vera svona jafnréttisvika. Í dag átti ég og Freyja að vera með svona kynningu á eigindlegum viðtölum sem við tókum. Skreytum 2 plaköt af myndum og textum. Síðan vorum við frá 11 til svona hálf 2 að kynna verkefnið, eða reyndar bara þegar fólk spurðist svona um það á leið framhjá. Það var bara hressandi, og núna er ég bara að taka pásu frá heimalærdómnum. Þarf síðan að fara vinna um 4 leytið, jejj. En allavega bara góða helgi 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 23:40:38 / brussa

Veikindi í gangi.

Já, ég get nú sagt að þessi dagur byrjaði ekki mjög vel. Vaknaði í morgun að drepast í hálsinum, síðan tók ég eitt skref . Svimaði endalaust þannig ég fór bara aftur upp í rúm. Síðan var ég bara heima í dag og láta mér batna. Var rosa dugleg að læra og tók meira segja til í herberginu mínu. Ætla að fara í skólann á morgun og vinnuna. Það er svo mikið eftir að gera fyrir bústaðarferðina. En ætla að segja þetta gott, ætla að fara og fá mér fegrunarblund. Sweet dreams

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 00:06:59 / brussa

Góða skemmtun...

hæhæ hér er smá dót sem þið getið dundað ykkur að gera, það er annars bara gott að frétta 0

1.Þekkirðu mig persónulega?
2.Hvað finnst þér um mig?
3.Langar þér að kynnast mér betur?
4.Myndirðu vilja koma með mér einni á eyðieyju í viku?
5.Ef þú mættir bara taka 3 hluti með þér á eyðieyjuna, hvað myndi það vera?
6.Hvað myndirðu gera ef þú værir fastur/föst í lyftu með mér?
7.Ertu með tattoo eða piercing?
8.Myndirðu gráta ef ég myndi deyja?
9.Hver er versti kækurinn þinn?
10.Hvað minnir þig á mig?
11.Myndirðu verja mig ef einhver væri að níðast á mér?
12. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þér á móti?

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 10:50:58 / brussa

Miss Blondie

Jæja gott fólk.

Þá er ég orðin ljóshærð og er ekki dökkhærð lengur. Það er soldið mikill munur en ég er mjög ánægð með klippinguna. Ég er bara að vinna alla vikuna því að ég er að leysa af í vinnunni. Það er bara mjög fínt það er ekki voða mikið af lærdómi í skólanum. Ég er bara í eyðu núna, er að bíða eftir Pálu þegar hún er búin í skólanum. Hún ætlar að kíkja í heimsókn. Síðan fer að styttast í páskana og þá kemur Anna og co til Íslands.  Ég fór í heimsókn til Stellu í gær, held að hún sé að verða eitthvað veik var með smá hita greyjið. En vonandi er hún ekki að verða veik. Adios amigos.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 09:34:00 / brussa

Chill helgi...

Á föstudaginn eftir vinnuna þá fór ég beint til ömmu. Hittumst öll fjölskyldan og fengum okkur pizzu, því að afi minn átti afmæli þennan dag. Það var rosa fínt eftir pizzuna horfðum við á gettu betur. MK vann rústuðu því algjörlega 27-17 fyrir MK. Síðan fór ég og Harpa í smá bíltúr og keyrði henni síðan bara heim. Eftir það fór ég bara heim og sofnaði. Á laugardaginn var ég bara eitthvað að vesenast allan daginn. Á sunnudaginn skrapp ég til Hveragerðis aðeins, síðan kíkti Pála í heimsókn og við fórum til Stellu. Leigðu okkur dvd og horfðum á Last Kiss sem er mjög góð mynd. Sem sagt þetta var mjög róleg helgi. :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 19:10:12 / brussa

Wazup

Vetrarfríið hjá mér var algjört yndi , það byrjaði allt þannig. Á föstudaginn var ég að fara í 4 daga frí, sem er bara gott mál. Eftir vinnuna fór ég í bíó með Stellu á Ghostrider, sem er ekki mjög góð mynd. En ég veit að Stella er ekki sammála mér. Sko, mér finnst bara Nichol Chades eða hvað sem hann heitir. Ekki góður leikari, ég fatta ekki húmorinn hans. En allt í lagi með það eftir bíóið var kíkt til Pálu. Horft á úrslitin í x-factor, sem var bara allt í lagi. Er samt orðin eitthvað þreytt á þessum þætti. Á laugardaginn var ekki gert neitt af viti var bara heima að glápa á sjónvarpið. Síðan um kvöldið var planið að horfa á Eurovision hjá Siggu. Ég , Stella, Pála og Kata kíktum í heimsókn til hennar. Eftir það var kíkt í bæinn og vorum ég ´, Fanný, Stella og Pála í samfloti. Það var bara mjög gaman í bænum, fyrir utan það hvað voru margir. Á sunnudaginn vaknaði ég eldsnemma klukkan hálf 10. Kíkti síðan til Hörpu fórum og fengum okkur að borða. Man ekki alveg hvað ég gerði meira á þessum degi. Á mánudaginn og þriðjudaginn var ég bara að vinna báða daganna. Það var soldið skrítið að fara í skólann í dag, vakna svona snemma. Áður en ég fór í efnafræði tók ég mér ofnæmistöflu, kennarinn var með svo miklar áhyggjur af mér. Ég er allavega búin að komast að því að ég mundi ekki geta verið efnafræðingur . Vona bara að ég megi fara í sund bráðum, það er ekki voða gaman að vera með ofnæmi fyrir klór.  Einhver verður að sjá um að vera óheppin.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
nokkrir tenglar til þess að drepa tímann..